MYNDLIST / TEIKNING / SKÖPUN V.04 - 6.-7. bekkur vor 2021 miðvikudaga 14:30-16:00
MYNDLIST/TEIKNING/SKÖPUN
Vorönn 2021
Kennsla hefst 3.febrúar
Kennt í 12 vikur
Kennari - Heiðdís Helgadóttir teiknari/hönnuður
Aðstoðarkennari - Aþena Arna
Staðsetning - Norðurbakki 1 Hafnarfirði
Miðvikudaga 14:30-16:00
Markmið námskeiðsins er fyrst og fremst að skapa saman og hafa gaman! Námskeiðið byggist upp á ákveðnum fastmótuðum verkefnum sem lögð eru fyrir nemendur. Verkefnin taka hins vegar ávallt mið af nemendunum og samsetningu hvers námskeiðshóp fyrir sig – enda er það trú okkar og reynsla að nemendur blómstri mest þegar þeir fá svigrúm til að vinna að því sem þeir hafa ástríðu fyrir og veitir þeim útrás fyrir sköpunargleðina.
Athygli foreldra er vakin á því að hægt er að fá frístundastyrk hjá Hafnarfjarðarbæ til niðurgreiðslu.
Sótt er um frístundastyrk á Mínar síður - íbúagátt Hafnarfjarðarbæjar.
Sjá nánar: Frístundastyrkir
Hægt er að dreifa greiðslum á sex mánuði með því að velja millifærslu, klára pöntun og hafa svo samband með pósti á heiddis@heiddis.com.